Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég hygg að hv. þm. Össur Skarphéðinsson sé fullfær um að svara fyrir sín eigin orð. En hafi hv. þm. Tómas Ingi Olrich lagt við eyrun í dag og gær og hlustað eftir viðhorfum hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar til þessa frv., þarf hann ekki að velkjast í vafa eitt aukatekið andartak um afstöðu hans til forms og innihalds. Meginmálið er auðvitað það og það er hárrétt hjá hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni að það sem sker fyrst í augun á fyrstu stigum þessa máls er auðvitað aðdragandinn og sú lítilsvirðing sem hæstv. ráðherra og ríkisstjórn sýnir fólkinu í landinu og verkalýðshreyfingunni. Hæstv. ráðherra og ríkisstjórnin eyðileggur þá merku tilraun sem farið var af stað með. Í næstu lotu er það síðan efnisinnihaldið og þar held ég að enginn þurfi að velkjast í vafa um það að Alþfl. er heill og óskiptur í algerri andstöðu sinni við þetta kropp, þessi orð á blaði, þessar lausu hugmyndir, þessa árás á verkalýðshreyfinguna í landinu.