Íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins

Fimmtudaginn 11. apríl 1996, kl. 11:56:57 (4539)

1996-04-11 11:56:57# 120. lþ. 116.5 fundur 394. mál: #A íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins# (leiga, sala embættisbústaða o.fl.) frv., fjmrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur

[11:56]

Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. sem er á þskj. 692 og er 394. mál þingsins. Þetta er breyting á lögum nr. 27/1968, um íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins. Gerðar eru nokkrar breytingar sem eru tiltölulegar einfaldar. Í 1. gr. er gerð sú breyting að húsaleigugjald er ákveðið með reglugerð eins og í núgildandi lögum en miðast við markaðsleigu en ekki mat og í lok 1. gr., sem er breyting á 5. gr. laganna, kemur nýtt ákvæði svohljóðandi, með leyfi forseta:

,,Heimilt er að setja í reglugerð viðmiðunarreglur um lágmark og hámark leigu sem taki breytingum eftir vísitölu.``

Í 2. gr. er sú eina breyting að við 9. gr. laganna bætist svohljóðandi texti, með leyfi forseta:

,,Sala fasteigna skv. 1. mgr. þessarar greinar skal fara eftir ákvæðum laga nr. 52/1987, um opinber innkaup, með síðari breytingum, og reglum settum samkvæmt þeim.``

3. gr. er ný en þar er lagt til að skipuð sé sérstök nefnd sem skal vera ráðherra til aðstoðar við framkvæmd laganna.

4. gr. er nýtt bráðabirgðaákvæði þar sem heimilt er án auglýsingar að selja ríkisstarfsmönnum með sérstökum kjörum það húsnæði sem þeir hafa nú á leigu og búa í, enda sé húseignin staðsett í sveitarfélagi með fleiri en 1.000 íbúum. Í þeim sérstöku kjörum felst að ríkissjóður láni allt að 30% kaupverðs á hagstæðum kjörum og innlausnarskylda hvíli á eignunum í allt að fimm ár. Síðan er ætlunin að setja reglugerð um frekari framkvæmd á þessu.

Þetta frv. er í raun liður í stefnu ríkisstjórnarinnar um nýskipan í ríkisrekstri en þar segir m.a., með leyfi forseta:

,,Stefnt verður að því að fækka þeim fasteignum í eigu ríkisins sem sýnt er að nýtast ekki ríkisrekstrinum eða eru óhagkvæmar í rekstri. Þá verður embættisbústöðum í eigu ríkisins fækkað.``

Í janúar 1995 var skipuð nefnd til að gera tillögur um það til ríkisstjórnarinnar hvernig fækka megi embættisbústöðum með markvissum hætti. Í skipunarbréfi nefndarinnar var tekið fram að verkefni hennar væri að þrengja eins og kostur er þau lög og reglur sem gilda um úthlutun embættisbústaða og gera tillögu um í hvaða áföngum dregið verði úr eign ríkisins á íbúðarhúsnæði þannig að viðkomandi starfsmenn hafi eðlilegan aðlögunartíma og ekki verði óæskilegt rót á högum þeirra. Frv. þetta byggist á niðurstöðum nefndarinnar.

[12:00]

Um íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins gilda lög nr. 27/1968 og í 2. gr. þeirra laga segir að það skuli vera meginreglan að ríkið leggi ekki starfsmönnum sínum til íbúðarhúsnæði nema því aðeins að þeir gegni störfum í þeim landshlutum sem sérstakir staðhættir gera slíkt nauðsynlegt. Önnur helstu ákvæði laganna eru eftirfarandi:

1. Hlutaðeigandi ráðherra ákveður í samráði við fjármálaráðherra hvar ríkið skuli leggja starfsmönnum til íbúðarhúsnæði.

2. Starfsmönnum ber að greiða ríkissjóði leigu fyrir íbúðarhúsnæði sem miðast skal við brunabótamat, staðsetningu húsnæðisins og notagildi þess fyrir viðkomandi starfsmann.

3. Ríkissjóður greiðir alla skatta, skyldur og viðhaldskostnað íbúðarhúsnæðis í eigu ríkisins.

4. Bygging og viðhald íbúðarhúsnæðis svo og endurbætur á því skulu vera undir yfirstjórn þess ráðherra sem hlutaðeigandi embætti heyrir undir.

Þar sem eðlilegur markaður hefur skapast fyrir íbúðarhúsnæði til kaups eða leigu skal húsnæði selt þegar leigutakar þess hverfa úr því eða láta af störfum. Þó er heimilt að fresta sölu ef slíkt er bersýnilega hagkvæmt fyrir ríkissjóð. Skýrar reglur eru um hvernig sala skal fara fram, en þeim embættismanni sem býr í húsnæðinu við sölumeðferð þess er heimilt að ganga inn í hæsta verðtilboð, enda eigi salan sér stað á grundvelli söluskyldu skv. 1. mgr. 9. gr. laganna, þ.e. viðkomandi húsnæði er innan svæðis þar sem eðlilegur markaður hefur skapast fyrir íbúðarhúsnæði til kaups eða leigu.

Lög nr. 27/1968 komu í stað margvíslegra og brotakenndra lagaákvæða um embættisbústaði sem mörg hver áttu sér langa sögu og byggðust á hefð. Þau gerðu á engan hátt greinarmun á aðstöðu manna í þéttbýli eða í dreifbýli til að afla sér íbúðarhúsnæðis og var því brýn þörf á að marka skýra og samræmda stefnu í þessum málum. Meðal þeirra meginreglna sem leitast var við að fylgja við samningu lagafrumvarpsins voru:

1. Ríkið eigi ekki íbúðarhúsnæði til afnota fyrir starfsmenn, nema slíkt sé óhjákvæmilegt vegna staðhátta eða annarra brýnna ástæðna.

2. Starfsmönnum ríkisins verði ekki séð fyrir húsnæði eða veitt aðstoð til að eignast húsnæði ef þeir búa á þéttbýlissvæðum þar sem venjulegur markaður er fyrir íbúðarhúsnæði til kaups eða leigu.

Þessi sjónarmið eru enn í fullu gildi og ýtir það frv. sem hér er til umræðu undir að fullt tillit sé tekið til þeirra. Í gegnum tíðina hafa verið í gildi reglugerðir sem kveða nánar á um framkvæmd laganna. Ákvæði hafa verið þrengd og þeim svæðum þar sem embættismönnum eru útveguð íbúðarhús hefur fækkað. Núgildandi reglugerð er frá árinu 1992. Þá var m.a. ákveðið að stækka enn þau svæði þar sem ekki á að leggja til embættisbústaði og að gera skuli skriflega húsaleigusamninga. Á því hafði verið misbrestur.

Í frv. segir: ,,Innheimtar húsaleigutekjur skulu renna til greiðslu rekstrar- og viðhaldskostnaðar og haldið aðgreindum í bókhaldi frá öðrum rekstri.``

Ég legg áherslu á þetta því að eftir þessa breytingu hefur rekstri og viðhaldi íbúðarhúsnæðis í eigu ríkisins almennt verið betur sinnt en áður.

Í langflestum tilvikum er farið eftir reglugerðinni við útreikning húsaleigu. Leigutekjurnar renna í sjóði á vegum stofnana eða ráðuneyta og er þeim ætlað að standa undir kostnaði við rekstur og viðhald. Hins vegar hafa húsaleigutekjurnar ekki nægt til viðhalds húseignanna.

Ég mun nú víkja örlítið að efni frv.

Íbúðir í eigu ríkisins eru um 400. Er þá bæði átt við einbýlishús og íbúðir í fjölbýlishúsum. Þar eru þó ekki meðtaldir prestsbústaðir sem eru í umsjá Prestssetrasjóðs. Ekki er mælt með sölu alls íbúðarhúsnæðis í eigu ríkisins. Húseignirnar eru margar á litlum og afskekktum stöðum þar sem fasteignamarkaður er ýmist ekki fyrir hendi eða framboð á fasteignum mikið og því illmögulegt að selja fasteignir þar. Einnig eru fasteignir víða inni á lóðum stofnana, svo sem skóla eða sjúkrahúsa, og því óæskilegt að selja þær.

Ekkert mælir hins vegar með að ríkið leggi fámennum hópi embættismanna til íbúðarhúsnæði á stærri þéttbýlisstöðum.

Verði frumvarp þetta að lögum verður mögulegt að fækka umræddum íbúðum með markvissum hætti en þess þó gætt að viðkomandi ríkisstarfsmenn hafi eðlilegan aðlögunartíma og ekki verði óæskilegt rót á högum þeirra. Þær lagabreytingar sem í frumvarpinu felast gera eftirfarandi kleift:

1. Sala eigna á hagstæðum kjörum.

2. Hækkun húsaleigu. Með því að hækka húsaleigu í áföngum upp í það sem gengur og gerist á húsaleigumarkaði á hverjum stað muni það leiða til þess að ríkisstarfsmenn kaupi fremur en leigi.

Frv. gerir ráð fyrir að íbúðum í sveitarfélögum með fleiri en 1.000 íbúum verði markvisst fækkað. Þeir staðir sem hér um ræðir eru Reykjavík, allt Reykjaneskjördæmi, Akranes, Borgarnes, Stykkishólmur, Ólafsvík, Ísafjörður, Bolungarvík, Blönduós, Sauðárkrókur, Siglufjörður, Ólafsfjörður, Dalvík, Akureyri, Húsavík, Egilsstaðir, Neskaupstaður, Eskifjörður og Höfn í Hornafirði, Selfoss, Hveragerði, Þorlákshöfn, Eyrarbakki, Stokkseyri og Vestmannaeyjar. Með þessu gæti íbúðum í eigu ríkisins fækkað um allt að 120--130 á nokkrum árum.

Í sveitarfélögum með fleiri en 1.000 íbúum er fasteignamarkaður nægilega þróaður til að hægt sé að selja íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins og eftirláta húsnæðismarkaði á þeim stöðum að leysa húsnæðismál starfsmanna þess. Rétt er þó að bjóða ríkisstarfsmönnum forkaupsrétt á hagstæðari kjörum en gengur og gerist á fasteignamarkaði. Með því móti verður róti á högum þeirra haldið í lágmarki.

Þeir ríkisstarfsmenn sem það kjósi geti haldið áfram að leigja íbúðir í eigu ríkisins á kjörum sem í gildi eru hverju sinni en íbúðirnar verði seldar þegar þeir flytja úr húsnæðinu. Lagt er til að leigutakar greiði markaðsleigu á þeim stöðum sem hafa fleiri en 1.000 íbúa. Það yrði til þess að hvetja ríkisstarfsmenn til að kaupa það húsnæði sem þeir leigja, auk þess sem ástæðulaust er að niðurgreiða húsaleigu þar sem húsnæðismarkaður getur séð fyrir húsnæði á eðlilegum kjörum. Á stöðum með færri en 1.000 íbúum verði húsnæði ekki selt að sinni. Bæði getur verið nauðsynlegt að geta boðið upp á húsnæði á minni stöðum og erfitt getur verið að selja þar sem mikið framboð er. Á þeim stöðum er nauðsynlegt að hækka húsaleigu til þess að hún standi undir kostnaði við rekstur og viðhald. Gert er ráð fyrir að í byrjun árs 1999 verði gildistala húsaleigu á þessum stöðum hækkuð.

Varðandi einstakar greinar frv. vil ég benda á það sem ég sagði í upphafi máls míns en þar rakti ég þær breytingar sem verið er að gera á núgildandi lögum.

Í kostnaðarumsögn sem fylgir frv. kemur fram að gera má ráð fyrir að til lengri tíma litið geti sparnaður í útgjöldum til þessara mála einkum komið fram með þrennum hætti. Ástæða er til að benda sérstaklega á það.

Í fyrsta lagi koma til tekjur af sölu húseigna. Ekki er unnt á þessu stigi að segja fyrir um fjölda seldra húseigna. Telja verður ólíklegt að hækkun húsaleigu leiði til þess að núverandi leigutökum þyki hagkvæmara að kaupa húseignirnar í öðrum sveitarfélögum en þeim sem hafa yfir 1.000 íbúa. Áætlað er að söluandvirðið geti numið allt að 900 millj. kr. Er þá miðað við að meðalverð verði 80% af núverandi brunabótamati og að allar þær 120 húseignir verði seldar. Allt að 30% af söluandvirðinu mun þó ekki skila sér í ríkissjóð að fullu fyrr en að liðnum þeim lánstíma sem veittur verður á lánum úr ríkissjóði samkvæmt bráðabirgðaákvæði frumvarpsins.

Í öðru lagi munu leigutekjur af húsnæðinu aukast og duga betur til að standa undir viðhaldi þeirra. Þar verður annars vegar um að ræða auknar tekjur af tæplega 300 húseignum í sveitarfélögum með undir 1.000 íbúum sem áður höfðu gildistölurnar 0,3 og 0,4 til útreiknings leigunnar en fá gildistölurnar 0,4 og 0,6 í ársbyrjun 1999 samkvæmt greinargerð með frumvarpinu.

Ég veit að hv. þm. botna ekkert í þessu en ég ætla ekki að fara frekar út í það en nefndin getur litið á þessar gildistölur sem eru margfeldistölur og hafa kannski lítið að gera í framsöguræðu ráðherra.

Áætlað er að þær viðbótartekjur geti numið um 80 millj. kr. á ári þegar nýjar reglur verða að fullu komnar til framkvæmda. Hins vegar verður hækkun á leigutekjum af húseignum í sveitarfélögum með yfir 1.000 íbúum sem nú fengju gildistöluna 1 en voru áður felldar undir leiguviðmiðun með lægri gildistölu. Tekjuaukinn mun ráðast af því hversu margar af þeim íbúðum munu seljast samkvæmt heimild í bráðabirgðaákvæði í frumvarpinu. Hér er miðað við að helmingur íbúðanna verði seldur og að árlegar viðbótartekjur af húseignum í þessum flokki verði um 16 millj. kr.

Eins og margoft hefur komið fram er ætlunin að þeir fjármunir gangi til viðhalds þessara fasteigna.

Í þriðja lagi fellur niður eignarhaldskostnaðurinn af þeim húseignum sem tekst að selja á tímabilinu. Ef gert er ráð fyrir að helmingur húseigna í sveitarfélögum með yfir 1.000 íbúa seljist má áætla að árlegur viðhaldskostnaður sem fellur niður af þeim sökum nemi um 10 millj. kr. Sparnaður í fasteignagjöldum og tryggingum yrði á sama hátt um 4 millj. kr. á ári. Viðbótarsparnaður í reiknuðum fyrningum gæti numið um 7 millj. kr. á ári og lækkun reiknaðra vaxta af fjárbindingu gæti orðið um 22 millj. kr. miðað við 5% vexti. Alls gæti því árlegur sparnaður í þessum þáttum orðið um 45 millj. kr. að því gefnu að helmingur þessara húseigna verði seldur. Og að sjálfsögðu að því gefnu að ríkið hefði haldið fasteignunum við með fjármunum úr ríkissjóði að öðrum kosti.

Með samþykkt frv. verður gert mögulegt að losa um verulegt fjármagn sem bundið er í íbúðarhúsnæði um land allt. Aðstöðumunur verður jafnaður með því að starfsmönnum ríkisins er gert að afla sér sjálfir húsnæðis þar sem húsnæðismarkaður er í stakk búinn til að leysa húsnæðisþarfir þeirra og það mun styrkja húsnæðismarkaðinn á landsbyggðinni.

Ég vil að lokinni 1. umr. leggja til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. efh.- og viðskn.