Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Staðreyndin er sú að hv. þm. Tómas Ingi Olrich féll á hinu rökfræðilega prófi. Hann getur ekki haldið því fram að þessi breyting styrki ekki aflamarkskerfið. Það er alveg klárt. Að því er varðar síðan stuðning minn eða vantraust á aflamarkskerfinu þá held ég að hann geti leitað logandi ljósi um allar mínar ræður og hann mun ekki sjá að ég fari hörðum orðum um aflamarkskerfið. Ég hafði ákveðnar efasemdir um það. Á síðasta vori sagði ég þegar fyrir lágu niðurstöður togararallsins að þetta benti til þess að aflamarkskerfið væri loksins farið að skila árangri og að það væru vísindalegar stoðir undir því. Ég hef hins vegar gagnrýnt aflaregluna mjög harkalega vegna þess að ég skil hana ekki. Ég hef lesið þær skýrslur fram og til baka og ég skil þær ekki og ég fullyrði að hæstv. ráðherra skilur þær ekki heldur. Enginn ósérfróður maður getur skilið þá reglu af þeim pappír sem hefur verið borinn fyrir okkur. Það get ég fullyrt. Hann er verri en nokkur efnafræðitexti sem menn bruddu hér á árum fyrr í háskólanum.
Svo komum við aftur að spurningunni um réttlætið. Það er viss sannleiksbroddur í því sem hv. þm. segir að því marki að þegar aukningin verður þá er búið að taka svolítið af henni til þess að ballansera kerfið. Það er rétt hjá honum, þannig að aflamarksskipin fá ekki allt það sem þau hefðu fengið að óbreyttu kerfi. En hvernig var óbreytta kerfið? Það var þannig að smábátarnir voru að veiða tugþúsundir tonna umfram það sem þeir máttu og það gat enginn mannlegur máttur stöðvað þá vegna þess að þeir voru svo margir sem voru fullvissir um gildi þessara veiða hér í þinginu. Það má heldur ekki horfa fram hjá því að stóru togurunum, sérstaklega frystitogurunum og ísfisktogurunum stóru, hafa verið sköpuð ný tækifæri á úthafinu fyrir tilstyrk síðustu ríkisstjórnar og ekki síst formanns Alþfl., Smugan. Það eru sífellt að opnast fleiri valkostir, síldarsmugan og Reykjaneshryggurinn. Nú er svo komið að það eru ekki lengur til skip til þess að fara í Smuguna að því er einn ágætur maður úr kjördæmi hv. þm. sagði í blöðunum hér um daginn. En niðurstaðan er sú að rökfræðilega stenst ekki greining hv. þm. Tómasar Inga á þessu frv. sem hæstv. sjútvrh. leggur fram.