Lúðvík Bergvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson fór vel yfir sögu málsins. Hann hefur komið að þessum málum fyrr og þekkir því vel til. Það var alveg hárrétt hjá hv. þm. að allir þessir bátar komu inn löglega. Stjórnvöld lokuðu ekki á þetta kerfi, við getum orðað það sem aumingjadóm af þeirra hálfu. Því vil ég beina þeirri spurningu til hv. þm. hvort honum þyki eðlilegt þegar á þessu á að taka að þeim skipum sem hafa fylgt aflamarkskerfinu og virt ákvarðanir stjórnvalda skuli nú fórnað vegna þess að stjórnvöld gátu ekki tekið á þessari fjölgun á sínum tíma.