Ágúst Einarsson (andsvar):
Herra forseti. Þetta er nokkuð furðuleg yfirlýsing hjá hv. þm. Árna Mathiesen og ég óska eftir frekari upplýsingum um málavexti ef þingmaðurinn má vera að því að hlusta á mig.
Hér hefur hæstv. fjmrh. borið fram stjfrv. og gat ekki um neinn fyrirvara varðandi það mál. Hér kemur þingmaður í ræðustól og segist ekki styðja þetta mál, ekki efnislega og ekki formlega. Ég tel reyndar að þingmaðurinn sé ekki vel upplýstur um efnisatriði málsins og vil geta um hræðslu hans um áhrif á sparnað og fjármagnstekjuskatt. Það er vikið að því í nefndarálitinu. Það er hægt að flytja lært mál um það. Það er ekki talið beint samhengi þar á milli, en látum það vera. Þetta er að minnsta kosti ástæðulaus ótti. Það sem ég vil fá að vita, því ég tek mark á því þegar stjfrv. er borið fram, er að þingmaðurinn upplýsi mig: Ætlar hann að standa að lögfestingu þessa stjfrv. eða þeirri útfærslu sem verður eftir nefndarstörf í vor? Ef ekki, eru fleiri sama sinnis í Sjálfstfl. og hann varðandi þetta efni?
Það er nauðsynlegt að fá að vita, herra forseti, vegna málsmeðferðar og frekari umræðu, hvort hæstv. fjmrh. er að sýnast og blíðka þar með Framsfl. með framlagningu frv., en hafi aldrei ætlað sér að lögfesta skatt á fjármagnstekjur eins og maður veit að sterkar raddir eru um í Sjálfstfl. Við verðum að vita nákvæmlega hvort hér er á ferðinni blekkingarleikur eina ferðina enn, sem snýr ekki einungis að stjórnarandstöðunni sem hefur komið heiðarlega fram í málefnalegri umræðu, heldur líka að þessum ræfils Framsfl. sem er þarna með í þessu ríkisstjórnarsamstarfi, þannig að það eigi að henda þessu frv. út af borðinu með þessum vinnubrögðum í þinginu. Ég óska eftir því að hv. þm. upplýsi um stjórnarandstöðu í Sjálfstfl. varðandi þetta tiltekna frv. þannig að við getum áttað okkur á vinnubrögðum á næstu vikum.