Tekjuskattur og eignarskattur

Fimmtudaginn 18. apríl 1996, kl. 11:38:07 (4952)

1996-04-18 11:38:07# 120. lþ. 122.3 fundur 428. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (vaxtatekjur) frv., 429. mál: #A staðgreiðsla skatts af vaxtatekjum# frv., SighB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur

[11:38]

Sighvatur Björgvinsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. afdráttarlaus svör en hann svaraði ekki seinni spurningu minni sem laut að því hvort honum sé kunnugt um að fleiri þingmenn úr hans flokki hafi þá afstöðu að leggjast gegn stjfrv. Því miður er formaður þingflokks Sjálfstfl. ekki hér staddur en það er vani þegar stjfrv. eru til umfjöllunar í stjórnarflokkum að þá liggi fyrir efnisleg afstaða þingflokka stjórnarinnar til málsins, þar á meðal hvort stuðningur þingflokks viðkomandi stjórnarflokks sé við málið og ef ekki hversu margir þingmenn stjórnarflokksins muni ekki styðja málið þegar það kemur til kasta Alþingis. En þar sem enginn forustumaður þingflokks Sjálfstlfl. er hér viðstaddur þýðir lítið að bera fram þá spurningu sem ég ella hefði borið fram: Var samstjórnarflokknum, Framsfl., greint frá því að í þingflokki Sjálfstfl. væru einhverjir þingmenn, og þá hversu margir, sem væru andvígir frv. sem kynnt er og flutt er á Alþingi sem stjfrv.?