Tekjuskattur og eignarskattur

Fimmtudaginn 18. apríl 1996, kl. 11:39:32 (4953)

1996-04-18 11:39:32# 120. lþ. 122.3 fundur 428. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (vaxtatekjur) frv., 429. mál: #A staðgreiðsla skatts af vaxtatekjum# frv., TIO (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur

[11:39]

Tómas Ingi Olrich (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg rétt hjá hv. þm. að ég svaraði ekki seinni spurningu hans. Ég tel mér skylt og rétt að segja þingmönnum til um afstöðu mína til þessa máls. Ég samþykkti fyrir mína hönd að frv. yrði lagt fram, en lýsti andstöðu við það. Ég er ekki talsmaður þingflokksins né þingmanna Sjálfstfl. í heild þannig að það er ekki mitt hlutverk að svara þessari spurningu sem hv. þm. lagði fyrir mig og ég geri það þar af leiðandi ekki.