Tekjustofnar sveitarfélaga

Fimmtudaginn 18. apríl 1996, kl. 15:17:22 (4983)

1996-04-18 15:17:22# 120. lþ. 122.9 fundur 464. mál: #A tekjustofnar sveitarfélaga# (flutningur grunnskólans) frv. 79/1996, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur

[15:17]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Sveitarfélögin höfðu fylgst með gerð þessa frv. og þau vissu hvað í því stóð. Það lá hins vegar ekki fyrir upp á krónu hver þessi áhrif yrðu og það kemur ekki til með að liggja fyrir fyrr en lög hafa verið samþykkt í endanlegri mynd. Og þá er rétti tíminn til að ganga frá samkomulagi við sveitarfélögin um þetta.