Jóhanna Sigurðardóttir:
Virðulegi forseti. Ég þakka viðskrh. fyrir þessi svör sem ég tel þó ekki vera neina afsökun fyrir því að bankarnir geti ekki gefið svo mikilvægar upplýsingar. Í lögum um bankaeftirlitið geta þeir gengið eftir upplýsingum sem tengjast rekstri bankanna sem þeir greinilega hafa ekki gert í þessu tilviki. Ég tel að þetta hljóti að vera afar brýnt til þess að viðskrn., þingið og aðrir geti gert sér grein fyrir afkomu bankanna að þessar upplýsingar liggi fyrir.
En af því að hæstv. ráðherra lét það í ljós að hann muni koma á samstarfi viðskrn. og bankaftirlitsins til þess að auðvelda þessa upplýsingagjöf, þá vil ég spyrja um það hvort ég eigi þá von á því að fá þau svör sem um er spurt og ekki koma fram í þessu svari áður en þingi lýkur og þá hvort það sé rétt að bankarnir í sínu bókhaldi og í sinni starfsemi séu ekki með upplýsingar á stöðluðu eða samræmdu formi sem mér fannst raunverulega vaka í máli ráðherrans að væri ekki. Ef svo er ekki, þá er mjög erfitt að bera saman upplýsingar um hagi bankanna og einstaka kostnaðarliði sem um var spurt í þessari fyrirspurn.
En ég ítreka hvort ég eigi þá von á því að fá fyllri svör við þessari fyrirspurn áður en þingi lýkur.