Gunnlaugur M. Sigmundsson:
Herra forseti. Hv. þm. Svavar Gestsson hélt því fram áðan að sá sem hér stendur hafi sagt og það hafi verið niðurstaða mín að Landsbanka Íslands væri ekki treystandi vegna efa um það hvort einn bankastjóranna væri í fullkomnu jafnvægi. Annaðhvort hefur hv. þm. Svavar Gestsson ekki hlustað mjög vel á umræðuna í dag eða þá ekki verið viðstaddur þegar ég lauk máli mínu. Niðurstaða mín varð sú að það væri mikið af ágætisfólki í Landsbanka Íslands. Ég nefndi sérstaklega til mjög hæfan bankamann, Björgvin Vilmundarson, sem er einn bankastjóranna. Hann er sérstaklega fær og með langa reynslu. Ég nefndi líka til formann bankaráðs, Kjartan Gunnarsson, sem hefur yfirgripsmikla þekkingu á bankamálum. Þótt ég efist kannski um að einn bankastjóranna sé í fullkomnu jafnvægi er það engu að síður niðurstaða mín að það yfirleitt sé prýðisfólk í Landsbanka Íslands og bankanum sé vel treystandi til að fara með fjármál upp á rúmlega 100 milljarða kr.
Hvort sem Landsbanki Íslands er í vanda staddur eða ekki hvað varðar eiginfjárhlutfall er a.m.k. alveg ljóst að í árslok 1995 er eiginfjárhlutfall Landsbankans 9,38% sem er vel yfir BIS-reglum sem krefjast 8%. Ég held því að það þurfi ekki að eyða miklum tíma í meintan vanda Landsbankans. Hann uppfyllir BIS-reglur og er ágætlega staddur hvað eiginfjárhlutfall varðar.