Hjörleifur Guttormsson (andsvar):
Virðulegur forseti. Hv. þm. Össur Skarphéðinsson fer geyst og það er hressilegt og ágætt. Ég vil vekja athygli á því hvernig hv. þm. hagar orðum sínum þegar við ræðum spurninguna um aðild að Evrópusambandinu eða að standa þar utan við. Þá notar hv. þm. orðalag eins og það að taka afstöðu með framtíðinni, að þetta sé mál framtíðarinnar, að fólk sem setur spurningarmerki við slíka aðild komi langt aftan úr forneskju eins og hann sagði hér um hv. þm. Kristínu Ástgeirsdóttur. En þeir sem ganga gegn sínum flokki og mæla með aðild eru gustmiklir. Hv. þm. hefur ekki fyrir því að rökstyðja hvers vegna hann er svo ákafur í að Ísland gangi í Evrópusambandið. Hann hlustar ekki á varnaðarorð um það hvernig komið er í sambandi við félagsmál og atvinnumál í þessu ESB í sambandi við atvinnuleysi að meðaltali upp á 11%. Og það sem fram undan er það klif sem ekki er enn þá séð hvernig Evrópusambandið kemst yfir, sem er efnahags- og myntbandalagið 1999. Menn ættu að fara svolítið varkárar, ganga hægar um gleðinnar dyr í þessu húsi.