Háskóli Íslands

Þriðjudaginn 23. apríl 1996, kl. 23:07:50 (5228)

1996-04-23 23:07:50# 120. lþ. 125.13 fundur 217. mál: #A háskóli Íslands# (skrásetningargjald) frv. 29/1996, 218. mál: #A háskólinn á Akureyri# (skrásetningargjald) frv. 30/1996, Frsm. 2. minni hluta LB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 125. fundur

[23:07]

Frsm. 2. minni hluta menntmn. (Lúðvík Bergvinsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það kemur ekki skýrt fram í þessu frv. hvað er að baki þessum 24 þús. kr. sem ætlað er að innheimta í skrásetningargjald. Því vildi ég í andsvari við hv. frsm. menntmn. óska eftir því að hún skýrði það örlítið frekar úr ræðustól, nákvæmlega hvað það er sem liggur að baki þessum 24 þús. kr. til þess að við vitum nokkurn veginn fyrir hvað þetta skrásetningargjald stendur.