Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Út af þeim bandormi sem nefndur var, þingmenn hafa ekki séð hann almennt, er rétt að hann er ansi liðmargur. Þær breytingar sem þar eru nefndar eru allar nánast samkynja og að því leyti er þetta geðslegri bandormur en stundum hefur verið fluttur hér og ýmsir okkar staðið að. En þingmenn fá að sjá hann fljótlega. Þetta eru að vísu breytingar á eitthvað á annað hundrað lögum í einum bandormi en það er nánast endurtekning á milli laga á einstökum atriðum, samræming á milli laga, þannig að þau fara kannski óeðlileg vel í bandormi að þessu sinni. En það munu hv. þm. sjá.
Varðandi það sem hv. 9. þm. Reykv. nefndi um fjármagnstekjuskattinn er það ljóst að ríkisstjórnin stefnir að því að það frv. verði að lögum og það ætti að geta orðið þokkaleg sátt um það því að menn þekkja aðdraganda málsins um samstarfið í nefndinni svo gott sem fram á síðustu mínútu og samstarfið við aðila vinnumarkaðarins sem er höfðað til þegar rætt er um önnur mál og afstöðu þeirra í því sambandi. Ég er því ekki í vafa um að það mun nást samstaða um að afgreiða það mál.
Það er rétt hjá hv. 8. þm. Reykv. að það eru nokkur grundvallaratriði sem menn þurfa að horfa til. Ég er sammála því að menn þurfa að horfa bæði til stjórnar og stjórnarandstöðu og taka eigi eðlilegt tillit til hvors tveggja en það hlýtur þó að vera grundvallaratriði að stjórnarmeirihlutinn á þinginu njóti sín hverju sinni þannig að niðurstaðan í þingkosningum komi fram við afgreiðslu mála en auðvitað ber að taka eðlilegt og sjálfsagt tillit til stjórnarandstöðunnar.
Ríkisstjórnin hefur aldrei legið á þeim áformum sínum að afgreiða þessi tvö mál sem hér hafa helst verið gerð að umtalsefni, mál er varða vinnumarkaðinn, bæði hinn almenna og hin opinbera. Ríkisstjórnin hefur stefnt að því að afgreiða þau mál. En það er rétt að farið verði yfir þessi mál þegar við komum saman eftir þá tvo til þrjá daga sem nú fara í hönd og eru frídagar.