Réttindi langtímaveikra barna

Mánudaginn 29. apríl 1996, kl. 15:09:07 (5285)

1996-04-29 15:09:07# 120. lþ. 127.1 fundur 271#B réttindi langtímaveikra barna# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[15:09]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Vegna þeirrar fyrirspurnar sem hér er lögð fram frá hv. þm. Margréti Frímannsdóttur vil ég geta þess að sú skýrsla sem hún vitnar í er notuð í frv. sem hér liggur fyrir þinginu um réttindi sjúklinga. Einmitt í þeirri skýrslu sem vitnað er í kemur mjög skýrt fram ýmislegt sem ábótavant er varðandi réttindi langsjúkra barna og að hluta til er það tekið inn í þetta frv. sem ég ræddi um.