Mál starfsmanna Úthafsafurða hf. í Litáen

Mánudaginn 29. apríl 1996, kl. 15:15:17 (5291)

1996-04-29 15:15:17# 120. lþ. 127.1 fundur 272#B mál starfsmanna Úthafsafurða hf. í Litáen# (óundirbúin fsp.), ArnbS
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[15:15]

Arnbjörg Sveinsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég vil þakka ráðherranum fyrir svarið. Hann nefndi að til Litáens hefði farið lögfræðingur og fylgst með málinu þar og ég vil spyrja í framhaldi af því hvort eitthvað í skýrslu hans til ráðherrans gæfi tilefni til frekari aðgerða af hálfu íslenskra stjórnvalda.