Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég hlustaði grannt eftir yfirlýsingu þingmannsins. Það mun verða fylgst með efndum þeirra mála sem hann nefndi hér og ég vona svo sannarlega að framsóknarmenn standi fastar í fæturna varðandi lánasjóðinn en þeir hafa gert hingað til varðandi önnur þau mál sem þeir lofuðu fyrir kosningar. En það sem ég var að reyna að sýna fram á í ræðu minni er það að hér er verið að fara aftan að hlutunum. Umboðsmaður Alþingis kom með ábendingu um að þau gjöld, sem hafa verið innheimt í Háskóla Íslands, hefðu ekki lagastoð eins og það er kallað og þá fara menn þá leið að skilgreina það sem upphæðin á að dekka þannig að það fer langt langt út fyrir það sem með nokkrum hætti er hægt að tengja við innritun. Það er verið að innheimta gjöld fyrir almenna þjónustu. Það sem hér er verið að gera stenst einfaldlega ekki. Hvað skyldu menn nú oft hafa heitið því eins og hv. þm. Guðni Ágútsson að skattar skyldu ekki hækka, að prósentur hér og þar skyldu ekki hækka? En það stenst aldrei. Það sem er mergurinn málsins er að það verður mjög freistandi fyrir Háskóla Íslands að hækka þessi gjöld svo framarlega sem Framsfl. og Sjálfstfl. standa sig ekki í því að bæta stöðu háskólans.