Tæknifrjóvgun

Þriðjudaginn 30. apríl 1996, kl. 21:40:02 (5415)

1996-04-30 21:40:02# 120. lþ. 128.7 fundur 154. mál: #A tæknifrjóvgun# frv. 55/1996, Frsm. meiri hluta SP (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur

[21:40]

Frsm. meiri hluta allshn. (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Út af þessum orðum ítreka ég að umboðsmaður barna mætti fyrir allshn. út af þessu máli og hafði að sjálfsögðu skoðanir sínar á því og fylgdi umsögn sinni úr hlaði en hún lýsti því jafnframt yfir að hún teldi þetta spor í rétta átt eins og allshn. afgreiddi málið.

Varðandi þann félagsskap sem hv. þm. minntist á áðan hef ég að sjálfsögðu fulla samúð með honum og ég skil vel þau rök sem liggja þar á bak við en engu að síður er þetta ekki sambærileg staða hjá þessu fólki og því sem getið er á þann hátt sem frv. mælir fyrir um.