Tæknifrjóvgun

Þriðjudaginn 30. apríl 1996, kl. 21:50:27 (5425)

1996-04-30 21:50:27# 120. lþ. 128.7 fundur 154. mál: #A tæknifrjóvgun# frv. 55/1996, Frsm. meiri hluta SP (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur

[21:50]

Frsm. meiri hluta allshn. (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það hefur áður komið fram í ræðu minni í dag varðandi norsku lögin og það er ekkert leyndarmál að gerð var athugasemd við norsku lögin en eftirlitsnefndin sem var skipuð til þess að fylgjast með framkvæmd barnasáttmálans hefur ekki treyst sér til þess að skera úr um það og segja að það sé ólögmætt sem þeir hafast að og sé brot á sáttmálanum.