Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Ég tel nauðsynlegt vegna þingstarfanna að fá upplýst frá ríkisstjórninni, frá hæstv. forsrh. eða starfandi forsrh., hvað ríkisstjórnin hyggst gera varðandi svokölluð skerðingar- og haftafrumvörp sem vakið hafa reiði og mótmælaöldu í landinu öllu. Með hliðsjón af fjöldafundum verkalýðshreyfingarinnar um allt land 1. maí í gær þar sem þess er krafist að skerðingar- og haftafrumvörp ríkisstjórnarinnar verði dregin til baka þegar í stað og undanbragðalaust; með hliðsjón af ábendingum allra verkalýðsfélaga í landinu í sömu veru, að hafta- og skerðingarfrumvörp ríkisstjórnarinnar verði dregin til baka þegar í stað og undanbragðalaust; með hliðsjón af ábendingum lagadeildar Háskóla Íslands, að frv. um sáttastörf og vinnudeilur stríði gegn alþjóðlegum skuldbindingum okkar og með hliðsjón af því að fullyrðingar hafa komið fram um að frv. um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna stríði gegn samningum og hugsanlega stjórnarskrá landsins, þá er spurt hvort ríkisstjórnin ætli að verða við áskorunum, óskum og kröfum landsmanna um að skerðingar- og haftafrumvörpin verði dregin til baka þegar í stað og undanbragðalaust. Eða á bara að snurfusa til það sem útlendingar telja ámælisvert? Á að hunsa íslenskan almannavilja?
Við verðum að fá upplýsingar um þetta nú vegna þingstarfanna á komandi vikum.