Atvinnuleysisbætur til bænda o.fl.

Mánudaginn 13. maí 1996, kl. 15:22:31 (5925)

1996-05-13 15:22:31# 120. lþ. 136.1 fundur 303#B atvinnuleysisbætur til bænda o.fl.# (óundirbúin fsp.), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 136. fundur

[15:22]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Það er alveg rétt munað hjá hv. þm. að við höfum átt orðastað um þetta efni áður. Það stóð til að endurskoða lögin um atvinnuleysistryggingar og ég hinkraði við með reglugerðarbreytingu ef lagabreyting kæmist á.

Nú gerðist það að fyrir liggur að lagabreyting verður ekki á þessu þingi og breyting á lögunum bíður betri tíma. Þar af leiðandi er óhjákvæmilegt að taka á þessu máli innan ramma þess sem í gildandi lögum felst og ég hef það í undirbúningi.