Atvinnuleysisbætur til bænda o.fl.

Mánudaginn 13. maí 1996, kl. 15:23:30 (5926)

1996-05-13 15:23:30# 120. lþ. 136.1 fundur 303#B atvinnuleysisbætur til bænda o.fl.# (óundirbúin fsp.), SJS
[prenta uppsett í dálka] 136. fundur

[15:23]

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Það er viss framþróun í málinu. Nú hefur hæstv. ráðherra viðurkennt að hann muni ekki ná fram breytingum á lögum á þessum vetri þannig að honum endist ekki fyrsta árið í embætti til að koma þessu brýna forgangsmáli sínu fram og er það auðvitað dapurt. Þá stendur eftir að hæstv. ráðherra getur gert þarna lagfæringar með reglugerð. Ég sé enn síður ástæðu til að það vefjist mánuðum saman fyrir hæstv. félmrh., jafnvaskur maður og hann vill vera láta að hann sé, að drífa þá reglugerð fram. Ég vona að ég þurfi ekki að koma hingað fleiri ferðir til þess að inna eftir henni.