Skýrsla um stöðu og þróun jafnréttismála

Mánudaginn 13. maí 1996, kl. 15:37:42 (5936)

1996-05-13 15:37:42# 120. lþ. 136.1 fundur 305#B skýrsla um stöðu og þróun jafnréttismála# (óundirbúin fsp.), BH
[prenta uppsett í dálka] 136. fundur

[15:37]

Bryndís Hlöðversdóttir:

Herra forseti. Ég vildi fyrst og fremst kannski þakka hæstv. ráðherranum svörin. Ég lýsi yfir ánægju með að nú loksins skuli vera að þessu komið því að ég er búin að bíða spennt, í nokkrar vikur sagði ráðherrann, en þær eru orðnar líklega um það bil átta því að blaðið sem flutti fréttina kom út í mars. En ég fagna því að þetta sé á leiðinni og vænti þess þá að sjá þetta næstu daga hér á borðum.