Tæknifrjóvgun

Þriðjudaginn 14. maí 1996, kl. 21:13:46 (6030)

1996-05-14 21:13:46# 120. lþ. 137.5 fundur 154. mál: #A tæknifrjóvgun# frv. 55/1996, VS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 137. fundur

[21:13]

Valgerður Sverrisdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Það mun rétt vera að ég hafi ekki verið með rétta brtt. í höndunum hér áðan. Hún mun hafa verði prentuð upp. En engu að síður geri ég mér ekki grein fyrir þegar ég les þá tillögu hvort um nafnleynd er að ræða eða ekki. Þannig að ég bið hv. þm. að ljóstra því upp í sínu síðara svari hvort hann mæli með nafnleynd eða ekki.