Vegáætlun 1995--1998

Mánudaginn 20. maí 1996, kl. 23:12:00 (6324)

1996-05-20 23:12:00# 120. lþ. 142.12 fundur 295. mál: #A vegáætlun 1995--1998# (endurskoðun fyrir 1996) þál. 12/1996, samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 142. fundur

[23:12]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil gjarnan minna á það í framhaldi af því sem ég hef áður sagt að samkvæmt breytingartillögum samgn. nú og vegna meiri umferðar en áður hafði verið talið er svigrúm til þess að auka fé til öryggismála úr 60 millj. í 94 sem er töluvert og kemur auðvitað að góðu haldi.