Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Ég vil ekki deila við hæstv. félmrh. um þetta. Ég tel að við ættum bara að slá einu blóðrauðu náðarstriki yfir þetta syndaregistur sem honum fylgir í þessu máli.
Það kom fram hjá hv. þm. Guðna Ágústssyni að hann telur ráðlegast að þessu máli verði frestað til haustsins og menn reyni að ná samningum og samráði yfir sumarið. Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambandsins, bar fram sömu ósk af tröppum Alþingishússins fyrr í dag. Ég spyr því, herra forseti: Er ekki hæstv. félmrh. reiðubúinn til þess að taka í hina útréttu sáttahönd sem forseti Alþýðusambandsins rétti fram fyrir hönd verkalýðshreyfingarinnar í landinu og láta á það reyna, svo að ég noti orð forseta Alþýðusambandsins, hvort ekki tekst að ná samningum í sumar og koma svo hingað aftur í haust með afrakstur þess eða, ef hann telur að það sé ekki hægt, að koma þá fram með frv. í haust en láta reyna á samningsviljann sem forseti Alþýðusambandsins tjáði á tröppum hússins fyrr í dag? Ef hæstv. félmrh. í rauninni vill ná samningum og ef honum þykir það miður að það tókst ekki í aðdraganda þessa máls, er tækifærið núna. Er hann ekki maður til þess að taka í útrétta sáttahönd forseta Alþýðusambandsins?