Iðnþróunarsjóður

Miðvikudaginn 22. maí 1996, kl. 14:25:29 (6431)

1996-05-22 14:25:29# 120. lþ. 144.19 fundur 487. mál: #A Iðnþróunarsjóður# (gildistími o.fl.) frv. 63/1996, Frsm. GuðjG (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 144. fundur

[14:25]

Frsm. iðnn. (Guðjón Guðmundsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti iðnn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 9/1970, um Iðnþróunarsjóð, með síðari breytingum.

Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk á fund sinn Þorkel Helgason, ráðuneytisstjóra iðnrn., og Jón Steindór Valdimarsson frá Samtökum iðnaðarins. Auk þess barst erindi frá Iðnþróunarsjóði. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt án breytinga. Árni R. Árnason var fjarstaddur afgreiðslu málsins en undir þetta nefndarálit rita Stefán Guðmundsson, Guðjón Guðmundsson, Svavar Gestsson, Sigríður Anna Þórðardóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Hjálmar Árnason, Guðmundur Árni Stefánsson og Pétur H. Blöndal.