Réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga

Fimmtudaginn 23. maí 1996, kl. 11:40:49 (6513)

1996-05-23 11:40:49# 120. lþ. 146.3 fundur 376. mál: #A réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga# frv. 65/1996, ÖJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 146. fundur

[11:40]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Ég styð þetta frv. en hafði þar á fyrirvara og vil gera grein fyrir honum. Hann liggur í því að þetta er ekki sú allsherjarlausn sem ríkisstjórnin hefur viljað láta í veðri vaka og kemur engan veginn í stað frv. um greiðsluaðlögun sem Framsfl. lofaði á sínum tíma fyrir kosningar. Hér er hins vegar um mikilvægt framfaramál að ræða og mun gagnast mörgu skuldugu fólki. Ég segi já.