Réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga

Fimmtudaginn 23. maí 1996, kl. 11:43:02 (6515)

1996-05-23 11:43:02# 120. lþ. 146.3 fundur 376. mál: #A réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga# frv. 65/1996, SvG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 146. fundur

[11:43]

Svavar Gestsson:

Virðulegi forseti. Ég styð að sjálfsögðu þetta mál eins og það liggur fyrir en kvaddi mér hljóðs til að taka undir þær atkvæðaskýringar sem komu fram fyrr í atkvæðagreiðslunni um að þessi afgreiðsla er auðvitað hvergi nærri fullnægjandi miðað við þau hátimbruðu fyrirheit sem Framsfl. gaf fyrir síðustu kosningar varðandi greiðsluaðlögun og greiðsluvanda húsbyggjenda og skuldugra einstaklinga á Íslandi. Það er nauðsynlegt að draga það fram að með þessari afgreiðslu hefur Framsfl. ekki kvittað fyrir þau loforð sem hann gaf kjósendum í síðustu kosningum.