Spilliefnagjald

Fimmtudaginn 23. maí 1996, kl. 13:17:15 (6520)

1996-05-23 13:17:15# 120. lþ. 147.4 fundur 252. mál: #A spilliefnagjald# frv. 56/1996, umhvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 147. fundur

[13:17]

Umhverfisráðherra (Guðmundur Bjarnason) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég skildi ekki alveg þetta seinasta hjá hv. þm., því að með því að ráðherra hefur nú tvo í stað eins áður, þá hlýtur honum að vera miklu auðveldara að sinna þeim sjónarmiðum sem hv. nefnd setur fram, þ.e. þessum sjónarmiðum sem hv. þm. ítrekaði um að það skyldi gæta sjónarmiða atvinnulífs og almennings. Ég hef ekki neinar áhyggjur af því að vandasamt verði fyrir ráðherra að fara í gegnum það mál.