Frsm. fjárln. (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1995.
,,Fjárlaganefnd hefur haft frumvarpið til athugunar og fengið skýringar frá fjármálaráðuneyti. Enn fremur óskaði nefndin eftir umsögn Ríkisendurskoðunar. Í greinargerð frá stofnuninni kemur fram að framsetning frumvarpsins sé ekki nægjanlega skýr þannig að fyrir liggi hvað afgreiðsla frumvarpsins feli í raun í sér, einkum er varðar tilflutning fjárheimilda á milli ára sem stofnunin telur nauðsynlegt að sé afgreitt jafnhliða, á sama tíma og uppgjör fjáraukalaga viðkomandi fjárlagaárs, en ekki beðið með þá afgreiðslu til haustsins eins og tíðkast hefur.
Greiðsluyfirlit samkvæmt frumvarpi sýnir að innheimtar tekjur eru aðeins 7 millj. kr. lægri en fjárlög og fjáraukalög 1995 gerðu ráð fyrir. Á gjaldahlið hafa samþykktar heimildir hins vegar orðið 2,1 milljarði kr. lægri en gert var ráð fyrir. Þannig varð tekjuhalli A-hluta ríkissjóðs 2,1 milljarði kr. minni en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þá sýndu greiðsluhreyfingar nettó á efnahagslið rúmlega 900 millj. kr. minni útgreiðslur en áformað var. Lántökur A-hluta ríkissjóðs urðu 3,0 milljörðum kr. minni en áður fengnar heimildir gerðu ráð fyrir. Heildarbreytingar á gjaldahlið nema því um 10%. Hlutfallsbreytingar á árinu 1994 er varðar frávik frá fjárlögum eru svo til þær sömu og árið 1995.
Nefndin tekur undir sjónarmið Ríkisendurskoðunar um framsetningu frumvarpsins og telur enn fremur að frávik á niðurstöðum gjaldahliðar sé óeðlilega hátt, nær því hið sama og árið 1994 þrátt fyrir litla verðbólgu á árinu 1995.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt, en tilflutningur fjárheimilda á milli ára verður afgreiddur með fjáraukalögum fyrir árið 1996 að hausti. Hins vegar ber nauðsyn til að vinna að því að afgreiðsla þessara fjárheimilda geti framvegis farið fram á vorþingi.``
Undir nál. skrifa Jón Kristjánsson, Sturla Böðvarsson, Kristinn H. Gunnarsson, Árni M. Mathiesen, Árni Johnsen, Gísli S. Einarsson, Kristín Halldórsdóttir, Hjálmar Jónsson, Bryndís Hlöðversdóttir, Ísólfur Gylfi Pálmason og Arnbjörg Sveinsdóttir.