Grunnskóli

Þriðjudaginn 28. maí 1996, kl. 23:23:29 (6699)

1996-05-28 23:23:29# 120. lþ. 150.12 fundur 501. mál: #A grunnskóli# (yfirfærsla til sveitarfélaga) frv. 77/1996, Frsm. SAÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 150. fundur

[23:23]

Frsm. menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þeir verða að sjálfsögðu starfsmenn Reykjavíkurborgar. Með þeirri lausn sem verið er að vinna að, og ég veit ekki annað en hún sé í burðarliðnum og það séu komin drög að samkomulagi um að Reykjavíkurborg annist rekstur sérskólanna næsta ár, verða starfsmennirnir þar með starfsmenn Reykjavíkurborgar.