Réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins

Miðvikudaginn 29. maí 1996, kl. 16:20:15 (6767)

1996-05-29 16:20:15# 120. lþ. 151.1 fundur 372. mál: #A réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins# (heildarlög) frv. 70/1996, ÁE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 151. fundur

[16:20]

Ágúst Einarsson:

Herra forseti. Hér er verið að lögfesta vonda löggjöf og vinnubrögðin voru mjög slæm við undirbúning frv. Ég óttast afleiðingar sem verða í kjölfarið af samþykkt frv. Ég tel affarasælast að vísa frv. frá og það yrði þá lagt fram síðar eftir vandaðri undirbúning. Ég segi já.