Stjórn fiskveiða

Föstudaginn 31. maí 1996, kl. 13:07:20 (6899)

1996-05-31 13:07:20# 120. lþ. 157.10 fundur 437. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðar krókabáta) frv. 105/1996, 436. mál: #A Þróunarsjóður sjávarútvegsins# (úreldingarstyrkur til krókabáta) frv. 109/1996, Frsm. meiri hluta GHall
[prenta uppsett í dálka] 157. fundur

[13:07]

Frsm. meiri hluta sjútvn. (Guðmundur Hallvarðsson):

Herra forseti. Á þskj. 1092 er nál. um frv. til breytingu á lögum nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, frá meiri hluta sjútvn.

Til nefndarinnar komu fjölmargir aðilar eða um 20 einstaklingar og auk þess bárust umsagnir frá fjölmörgum samtökum í sjávarútvegi. Nefndin fjallaði um þau mál.

Það frumvarp sem hér um ræðir byggist á samkomulagi milli Landssambands smábátaeigenda og sjávarútvegsráðherra. Meiri hluti nefndarinnar leggur því áherslu á að ákvæði frumvarpsins verði lögfest á þessu þingi. Meiri hlutinn gengur út frá því að Landssamband smábátaeigenda sjái til þess að þeir sem gera út krókabáta standi við samkomulagið, enda er með þessu móti komið mjög til móts við smábátaeigendur. Þá vill meiri hlutinn taka skýrt fram að ekki verða gerðar frekari breytingar á þeim reglum sem gilda um sóknardaga eftir lögfestingu þessa frumvarps.

Við umfjöllun málsins bárust nefndinni óskir frá sjávarútvegsráðuneytinu um að gera breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, til viðbótar þeim sem frumvarpið mælir fyrir um. Tengjast þær svokallaðri ,,línutvöföldun`` o.fl. en snerta á engan hátt þau ákvæði er varða krókabáta. Gerð er grein fyrir þessum breytingum á sérstöku þingskjali, en í þeim felst eftirfarandi:

Lagt er til fellt verði brott úr lögunum ákvæði um að sjávarútvegsráðherra sé ekki heimilt að breyta úthlutuðum heildarþorskkvóta eftir 15. apríl. Þannig verði heimilt að gera slíkar breytingar út fiskveiðiárið.

Lagt er til að svokölluð línutvöföldunarregla í 6. mgr. 10. gr. laganna verði felld brott, en samkvæmt henni skal fiskur, sem veiðist í mánuðunum nóvember--febrúar, aðeins að hálfu talinn til aflamarks þangað til sameiginlegur línuafli af þorski og ýsu hefur náð 34.000 lestum miðað við óslægðan fisk.

Tillögu um að fella brott úr lögunum 2. tölul. 3. mgr. 7. gr. leiðir af þessari breytingu. Til að koma til móts við þau skip sem stundað hafa þessar veiðar á síðustu þremur fiskveiðiárum er í tillögu að nýju ákvæði til bráðabirgða gert ráð fyrir að þeim verði reiknuð sérstök viðbótaraflahlutdeild í hlutfalli við veiddan línuafla á þessum tímabilum sem nemur 60 af hundraði af þeim hluta aflans sem ekki taldist til aflamarks.

Lagt er til að ákvæði 1. gr., sem verður 2. gr., öðlist þegar gildi svo að eigendur þeirra báta sem þegar hafa verið dæmdir óbætandi vegna sjótjóns þurfi ekki að bíða fram til 1. september með endurnýjun.

Í 4. mgr. 12. gr. laganna er ákvæði um að veiði fiskiskip minna en 50% af samanlögðu aflamarki sínu í þorskígildum talið tvö ár í röð falli veiðileyfi þess og aflahlutdeild niður. Lagt er til að við málsgreinina verði bætt ákvæði um að þetta gildi ekki um skip sem tefjast frá veiðum í sex mánuði eða lengur innan fiskveiðiárs vegna tjóns eða meiri háttar bilana.

Frumvarpinu er ætlað að öðlast gildi í upphafi næsta fiskveiðiárs. Lagt er til að heimild ráðherra í sambandi við sjóstangaveiðimót, sbr. 2. efnismgr. 3. gr. frumvarpsins, öðlist þó þegar gildi.

Undir þetta nál. rita auk mín, Árni R. Árnason, Hjálmar Árnason, Stefán Guðmundsson, Hjálmar Jónsson, Einar Oddur Kristjánsson og Sighvatur Björgvinsson, með fyrirvara.

Á þskj. 1095 er nál. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 92 24. maí 1994, um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, með síðari breytingum, frá meiri hluta sjútvn. og er það svohjóðandi:

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Hinrik Greipsson frá Þróunarsjóði sjávarútvegsins. Þá fékk nefndin sendar umsagnir um málið frá Landssambandi smábátaeigenda og Landssambandi íslenskra útvegsmanna.

Frumvarpið er flutt í tengslum við frumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða sem nefndin hefur einnig lokið umfjöllun um.

Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Auk mín rita undir þetta nál., Árni R. Árnason, Hjálmar Árnason, Stefán Guðmundsson, Sighvatur Björgvinsson, Hjálmar Jónsson og Einar Oddur Kristjánsson.

Virðulegi forseti. Ég legg til að að loknum umræðum um þessi mál verði þeim vísað til 3. umr.