Kristinn H. Gunnarsson:
Herra forseti. Frv. þetta er nánast í fullu samræmi við tillögu nefndar um fjármagnstekjuskatt. Að tillögunni standa allir nefndarmenn og í nefndinni sátu fultrúar allra þingflokka, svo og fulltrúar ASÍ og VSÍ. Í bókun fulltrúa stjórnarandstöðuflokkanna er gerð grein fyrir athugasemdum þeirra við nokkur efnisatriði og áskilinn réttur til þess að flytja breytingartillögur við málið á Alþingi. En tekið er fram að þeir muni að lokum styðja málið þrátt fyrir það að breytingartillögur nái ekki fram að ganga. Ég styð þessa afstöðu fulltrúa stjórnarandstöðuflokkanna í nefndinni og þrátt fyrir einstaka ágalla á málinu tel ég ekki ástæðu til þess að vísa því frá.