Ágúst Einarsson:
Herra forseti. Ákvæði til bráðabirgða II fjallar um heimild til útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Þetta ákvæði og reyndar aðrir þættir í frv. tengjast því að með samþykkt þess verður félögum hér á landi gefið aukið svigrúm til að hækka hlutfé sitt og greiða út hærri arð sem er skattfrjáls. Þetta lækkar skattgreiðslu fyrirtækja. Þetta mun jafnframt hækka arðgreiðslur. Þetta er hluti í skattalækkunarstefnunni sem kemur fram í þessu frv. Við hefðum kosið að þessir hlutir hefðu verið útfærðir á betri hátt en hér er gert. Það var liður í þeirri röksemd þegar við óskuðum eftir að málið yrði skoðað betur í sumar. Það er augljóst að með samþykkt þessarar útfærslu eins og m.a. kemur fram í þessu ákvæði, er verið að færa til fjármuni í meira mæli en við höfum nokkurn tíma séð. Ég leggst gegn þessu ákvæði til bráðabirgða.