Svavar Gestsson:
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir undirtektirnar og vænti þess að hann komi þessu erindi á framfæri. Ég vil jafnframt benda á að ástæðan fyrir þessum vanda er m.a. sú að barna- og unglingageðdeild ríkisins er hætt að taka við tilvísunum um einstaklinga sem greinast með einhverfu af einhverju tagi. Það er undirrót vandans. Þess vegna snýr þetta mál líka að hæstv. heilbrrh. og ég fer fram á það við hana að hún taki á þessu máli líka.