Eiginfjárstaða Landsbankans og tap Lindar hf.

Mánudaginn 03. júní 1996, kl. 14:12:11 (7012)

1996-06-03 14:12:11# 120. lþ. 158.8 fundur 336#B eiginfjárstaða Landsbankans og tap Lindar hf.# (óundirbúin fsp.), ÁRJ
[prenta uppsett í dálka] 158. fundur

[14:12]

Ásta R. Jóhannesdóttir:

Það kom fram hjá hæstv. ráðherra, herra forseti, að það eru bankastjórarnir sem bera ábyrgðina. Verða þeir látnir sæta ábyrgð? Ég spyr hæstv. ráðherra um það. Það er greinilegt á svörum ráðherrans hér að það er ýmislegt óupplýst í þessu máli, upplýsingar sem almenningur á rétt á að fá. Það er greinilega engum blöðum um það að fletta, hæstv. ráðherra.