Staðfest samvist

Mánudaginn 03. júní 1996, kl. 19:20:25 (7062)

1996-06-03 19:20:25# 120. lþ. 158.16 fundur 320. mál: #A staðfest samvist# frv. 87/1996, Frsm. SP
[prenta uppsett í dálka] 158. fundur

[19:20]

Sólveig Pétursdóttir:

Virðulegi forseti. Ég vil fá að nota hér tækifærið til þess að leiðrétta. Áðan var minnst á að það væri skerðingarákvæði í brtt. frá allshn. en svo er ekki. Það er verið að færa til þarna greinar. Þessi ákvæði eru í frv. sjálfu. Að öðru leyti þakka ég hv. þm. fyrir umræðurnar og vona að málinu verði vel tekið hér á hinu háa Alþingi og ég sé ekki ástæðu til annars eins og menn hafa rætt um það.