Staðfest samvist

Mánudaginn 03. júní 1996, kl. 19:21:04 (7063)

1996-06-03 19:21:04# 120. lþ. 158.16 fundur 320. mál: #A staðfest samvist# frv. 87/1996, SvG
[prenta uppsett í dálka] 158. fundur

[19:21]

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég þakka hv. 5. þm. Reykv. fyrir ábendingarnar. Þær eru réttar en þær breyta ekki þeirri efnislegu afstöðu minni að mér þykja þær takmarkanir sem þær fela í sér ekki vera til bóta.