Margrét Frímannsdóttir:
Virðulegi forseti. Sú tillaga sem hér er verið að afgreiða má segja að sé í raun og veru eðlilegt framhald af þeirri umræðu sem hefur verið um stöðuna í fíkniefnamálum þar sem ljóst er að um aukinn innflutning og neyslu fíkniefna er að ræða og aukin afbrot samfara aukinni neyslu fíkniefna. Niðurstaðan sem nefndin kemst að er að vísa tillögunni til ríkisstjórnarinnar vegna þess að þar sé nefnd að störfum. Maður getur skilið textann þannig að nefndin þar eigi þar kannski fyrst og fremst og ekki síst að fjalla um það hvort breyta eigi refsirammanum. Það er mín skoðun að refsiramminn sé nægjanlega rúmur. Það er hins vegar í undantekningartilvikum sem dæmt er til eins þungar refsingar og þó er heimild til. Hér á landi þykir t.d. 10 mánaða fangelsisdómur afar þungur dómur og ef menn skoða skýrslu Fangelsismálastofnunar þá komast þeir að raun um að það er í undantekningartilvikum að þær heimildir sem eru til hámarksrefsinga innan almennra hegningarlaga eru nýttar. Þetta er því kannski að mínu mati frekar spurningin um það hvort að það sé ástæða til þess með einhverjum hætti að hefja umræðu um það en ekki endilega að taka út einn þátt refsilaganna eða refsilöggjafarinnar og breyta honum. Það hafa áður komið upp dæmi á Alþingi þar sem því hefur verið beint til ríkisstjórnar eða til Alþingis að breyta refsilöggjöfinni út af einstökum málum sem eru efst á baugi á hverjum tíma. Ég tel það rangt og að það sé þá eðlilegra að fara í heildarendurskoðun á hegningarlögunum heldur en að taka fyrir sérstök ákvæði vegna einhverra sérstakra afbrota, betra væri að skoða þetta í heild sinni.
Ég fagna að vissu leyti þessari afgreiðslu en hefði þó viljað sjá að nefndin sem er að störfum og var skipuð af dómsmrh. hefði verið búin að skila einhverjum tillögum til úrbóta í þessum málaflokki núna áður en þingið fer heim vegna þess að samkvæmt því sem ég sá í skýrslu hæstv. forsrh. sem hann skilaði til þingsins 29. apríl og vitnað er til í nefndarálitinu, var sambærileg nefnd starfandi 10 sl. ár og hafði skilað einhverri skýrslu en hún hefur líklega aldrei komið hér til umræðu í þinginu. Ég held að það sé mjög nauðsynlegt fyrir okkur að taka þessi mál til umræðu um leið og skýrslan liggur fyrir sem hlýtur þá að verða í haust úr því sem komið er, ef menn eru nú að fara heim í svokallað sumarleyfi.