Merkingar þilfarsfiskiskipa

Mánudaginn 03. júní 1996, kl. 22:55:25 (7118)

1996-06-03 22:55:25# 120. lþ. 158.33 fundur 189. mál: #A merkingar þilfarsfiskiskipa# þál. 20/1996, Frsm. EKG (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 158. fundur

[22:55]

Frsm. samgn. (Einar K. Guðfinnsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti á þskj. 1098 um till. til þál. um breytingu á merkingum þilfarsskipa frá samgn.

Samgn. fjallaði um málið og fékk á sinn fund Pál Hjartarson frá Siglingamálastofnun ríkisins.

Nefndin fékk sendar umsagnir um tillöguna frá Siglingamálastofnun ríkisins, Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Slysavarnafélagi Íslands, Sjómannasambandi Íslands, Landhelgisgæslu Íslands, Vélstjórafélagi Íslands og Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands.

Eftir skoðun nefndarinnar á tillögunni og ábendingar leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt með svofelldri breytingu:

Tillögugreinin orðist svo: ,,Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að breyta reglugerð nr. 493/1986, um merkingu skipa, þannig að krafa verði gerð um að þilfarsfiskiskip séu merkt með kallmerki skipsins til viðbótar öðrum merkingum sem gerð er krafa um í sömu reglugerð. Við útfærslu slíks ákvæðis og gildissvið skal tekið mið af alþjóðlegum tilmælum um merkingar fiskiskipa.``

Kristín Halldórsdóttir sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk áliti þessu. Undir nefndarálitið skrifa Einar K. Guðfinnsson, Magnús Stefánsson, Kristján Pálsson, Egill Jónsson, Stefán Guðmundsson, Árni Johnsen, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Ragnar Arnalds og Gísli S. Einarsson.