Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Þetta mál er illa unnið og fjölmörgum spurningum er ósvarað. Sérstaklega gagnrýni ég mál starfsmannanna sem á að vinna í sumar. Ég tel rétt að sú vinna fari fram áður en þetta mál verður afgreitt frá þinginu, menn leggist yfir það og vinni verkið almennilega fyrir haustið. Ég styð því að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar og segi já.