Landbúnaðarráðherra (Guðmundur Bjarnason):
Hæstv. forseti. Aðeins örfá orð. Það er ekki mikill tími til umræðunnar í þessum knappa tíma sem er samkvæmt þingsköpum. En vegna ummæla hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur þar sem hún talar um hver sé ferill ráðherrans á þessu eina rúma ári sem hann hefur setið í stóli félmrh. Heldur virkilega þessi hv. þm., hæstv. fyrrv. félmrh., og reyndar málshefjandi líka sem einnig er fyrrv. hæstv. félmrh., að 317 manna biðlisti, ef það er rétt sem ég er ekki að rengja, 103 í Reykjaneskjördæmi, 214 í Reykjavík, 317 manna biðlisti, hafi orðið til á einu ári? Halda þessir hv. þingmenn það virkilega? (Gripið fram í.) Er það virkilega svo? Auðvitað er ekki hægt að lýsa ferli ráðherra með því að taka svona dæmi eða tölur upp. Og það gerir engum gagn að dreifa umræðunni á þennan hátt, setja hana í svona sviðsljós.
Það er verið að vinna að þessum málaflokki á mörgum sviðum eins og hv. þm. vita og hæstv. ráðherra hefur ítrekað og mun fylgja eftir. Og í sambandi við heimili sem ég hafði ekki yfirlit yfir áðan má t.d. nefna að heimili í Vallengi sem hv. málshefjandi nefndi, mun hefja starfsemi núna alveg á næstu vikum. Þar er þegar verið að vinna að ráðningum starfsmanna. Þær standa yfir og eru vonir til þess að það heimili verði til áður en langt líður. Ég nefndi áðan að tvö ný sambýli verða væntanlega tilbúin til notkunar í Reykjavík á þessu ári og því næsta og þar er gert ráð fyrir 10 mikið fötluðum einstaklingum. Auk þess hefur verið úthlutað úr Framkvæmdasjóði fatlaðra til félagslegra íbúða fyrir fatlaða. En mjög aukin áhersla hefur verið á undanförnum árum á að stuðla að sem mestri sjálfstæðri búsetu fatlaðra í íbúðum. Í því skyni hefur á síðustu árum verið úthlutað verulegum fjármunum úr sjóðnum til þess að veita fötluðum frekari liðveislu sem búa í þessum íbúðum. Þannig hefur verið úthlutað á sl. þremur árum úr þessum sjóði 210 millj. kr, þar af yfir 80 millj. á yfirstandandi ári. Það er því verið að vinna að ýmsum verkefnum sem eru öll mikilvæg. Og ég undirstrika þá skoðun ráðherrans að þegar við erum að tala um erfiðleika í fjárlagagerðinni, þá hefur hann sett það fram, og undir það get ég líka tekið með hv. þm. Margréti Frímannsdóttur, að ég tel sjálfur að flatur niðurskurður sé ekki góður kostur, hvorki í þessum málaflokki né öðrum. Menn verða að taka ákvarðanir um það hvaða verkefni og hvaða framkvæmdir á að fara í og hverjum á að raða í forgang. Flatur niðurskurður er ekki góður kostur og það er einmitt það sem kom fram í bréfi hæstv. félmrh. til stofnananna þegar hann sendi þeim skilaboðin sem tilheyra undirbúningi að fjárlagagerð fyrir næsta ár.