Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Þær eru margar skýrslurnar og sú skýrsla sem hæstv. ráðherra vísaði til var að vísu ekki send þingmönnum og hefur aldrei komið sérstaklega fyrir þeirra sjónir en mér er hins vegar fullkunnugt um hvað í henni stóð. Mér er jafnkunnugt líka um að það var aldeilis enginn einhugur um það í hópi skýrsluhöfunda hvernig ætti að standa þar að málum og m.a. um þau atriði sem eru í þessu frv. Mér er hreinlega kunnugt um að forsvarsmenn rekstraraðila félagsins St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og spítalans á Suðurnesjum höfðu verulegar athugasemdir í nefndarstarfinu sjálfu við framgang þeirra mála. Hæstv. ráðherra segir hér: Við skulum hafa gott samráð og samvinnu við hagsmunaaðila. Hún nefndi Reykjavíkurborg sérstaklega. Ég nefndi við annað tækifæri í dag ábendingu frá Sjúkrahúsi Suðurnesja þar sem ekki hefur verið haft samband, ekki orð í aðdraganda þessa máls og þeir biðja allra náðarsamlegast forsetadæmið og hv. þm. um að fá tækifæri til þess að lýsa viðhorfi sínu til þessara mála þannig að það er allt samráðið í því.
Kannski hefur hæstv. ráðherra ekki heyrt af þessu bréfi sjúkrahúsmanna í Keflavík. Ég skal ekki um það segja. En þær eru fleiri skýrslurnar og það rifjast upp önnur skýrsla sem fjallaði einmitt að stærstum hluta um það mál sem hér er til umræðu, þ.e. um stjórnskipan í heilbrigðismálum yfirleitt. Ég veit ekki betur en enn þá sé í gangi þverpólitísk nefnd og mjög fjölmenn nefnd hagsmunaaðila og pólitíkusa sem er að fara yfir þau mál í heild og breidd og hæstv. ráðherra hefur lýst því yfir að hún ætli að koma fram með heildstæða stefnumörkum af þessum toga hið allra fyrsta. Það bólar ekkert á því, nei. En hér hrynur inn afrakstur eins og hún sagði sjálf, afrakstur 100 manna, ein og hálf blaðsíða. Það var aldeilis allt og sumt sem út úr því kom.