Náttúruvernd

Miðvikudaginn 05. júní 1996, kl. 14:18:44 (7320)

1996-06-05 14:18:44# 120. lþ. 161.10 fundur 366. mál: #A náttúruvernd# (heildarlög) frv. 93/1996, Frsm. meiri hluta ÓÖH (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 161. fundur

[14:18]

Frsm. meiri hluta umhvn. (Ólafur Örn Haraldsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frv. til laga um náttúruvernd. Nefndarálitið er frá meiri hluta umhvn.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið til sín marga gesti. Enn fremur bárust nefndinni margar umsagnir sem hún hefur tekið til umfjöllunar í starfi sínu við þessu frv.

Frv. felur í sér verulegar breytingar á stjórn náttúruverndarmála og nokkrar breytingar á efnisatriðum laga um náttúruvernd. Nauðsynlegt er að gera breytingar þessar nú þar sem miklar breytingar hafa orðið á undanförnum árum á skipan náttúruverndarmála í stjórnkerfinu og miðar frv. að því að laga stjórn náttúruverndarmála að stofnun umhverfisráðuneytis. Meiri hluti nefndarinnar fagnar áætlaðri heildarendurskoðun laganna og bendir á nauðsyn þess að um þessi mál gildi skýrar og heildstæðar reglur.

Þá vill meiri hlutinn benda á nauðsyn þess að Náttúruverndarráði verði séð fyrir starfsaðstöðu, en ekki þykja efni til að kveða sérstaklega á um það í lögum.

Meiri hlutinn leggur til að frv. verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. En þessar efnisbreytingar eru eftirfarandi:

Í fyrsta lagi. Lögð er til breyting á 6. gr. er snýr að þjónustugjöldum. Lagt er til að ekki verði kveðið á um þjónustugjöld í samningum um umsjón náttúruverndarsvæða heldur sé rekstraraðilum heimilt að ákveða þau án íhlutunar Náttúruverndar ríkisins.

Í öðru lagi. Lögð er til breyting á 7. gr. er lýtur að hæfisskilyrðum sem þjóðgarðsverðir skulu uppfylla. Leggur nefndin til að þjóðgarðsverðir hafi sérþekkingu og reynslu sem nýtist þeim í starfi, en að ekki sé skilyrði að þeir búi yfir sérþekkingu á náttúrufræðum.

Í þriðja lagi. Lagt er til að við 12. gr. bætist ákvæði er kveður á um að Náttúruverndarráð veiti Náttúruvernd ríkisins faglega ráðgjöf.

Í fjórða lagi. Við 16. gr. er lögð til breyting er snýr að takmörkun umferðar og lokun svæða í verndarskyni. Lagt er til að Náttúruvernd ríkisins skuli gera úttekt á ástandi svæða í óbyggðum og gefa umhvrh. skýrslu þar sem fram komi niðurstöður úttektarinnar. Þannig skal koma fram í skýrslunni hvaða svæði eru í hættu og hvar geti komið til lokana. Almenningur skal eiga greiðan aðgang að skýrslunni þannig að fólk geti kynnt sér hvaða svæðum eða hlutum svæða standi til að takmarka umferð um eða loka á komandi ári. Þó er gert ráð fyrir að heimilt verði að loka svæðum þótt þess sé ekki getið í skýrslunni ef brýna nauðsyn ber til og ljóst er að ekki var fyrirsjáanlegt að hausti að loka þyrfti svæðinu eða takmarka umferð um það.

Í fimmta lagi. Lagðar eru til nokkrar breytingar á 35. gr. Þannig er í samræmi við breytingartillögu við 6. gr. lagt til að rekstraraðila náttúruverndarsvæðis, hvort sem það er Náttúruvernd ríkisins eða aðilar sem stofnunin hefur falið umsjón svæðanna, verði heimilt að ákveða gjald fyrir veitta þjónustu. Enn fremur er gert ráð fyrir að sömu aðilar geti ákveðið gjald fyrir aðgang að svæðinu ef þar hafa orðið spjöll af völdum ferðamanna eða hætta er á slíkum spjöllum. Tekjum af aðgangseyri skal verja til eftirlits, lagfæringar eða uppbyggingar á því svæði sem þeirra var aflað eða á aðkomu að svæðinu. Þá er lagt til að við 35. gr. bætist ný málsgrein þar sem kveðið er á um að Náttúruvernd ríkisins skuli birta skrá yfir gjaldtöku allra rekstraraðila náttúruverndarsvæða fyrir næsta ár með opinberri auglýsingu. Skal auglýsingin birtast eigi síðar en í september ár hvert. Slíka gjaldskrá er heimilt að kæra til umhverfisráðherra á grundvelli stjórnsýslulaga. Loks er lagt til að ráðherra verði heimilt að setja nánari reglur um framkvæmd ákvæðisins í reglugerð.

Frv. þetta fjallar um efni sem hefur tvívegis verið áður til meðferðar á Alþingi og er því mörgum alþingismönnum kunnugt.

Undir nefndarálit meiri hlutans rita Ólafur Örn Haraldsson, Ísólfur Gylfi Pálmason, Árni M. Mathiesen, Einar Oddur Kristjánsson, Katrín Fjeldsted, Gísli S. Einarsson með fyrirvara og Arnbjörg Sveinsdóttir.

Virðulegi forseti. Ég mæli einnig fyrir breytingartillögu við frv. sem ég hef fjallað um. Tillöguna flytur sá sem hér stendur og er brtt. um 25. gr. þar sem lagt er til að síðustu orð þeirrar greinar falli niður, þ.e. orðin ,,... eða mannvirki sem reist hafa verið fyrir samþykkt þessara laga``, og eru þau í síðari mgr. 25. gr. eins og ég gat um. Hér er fyrst og fremst um lagatæknilegt atriði að ræða. Ákvæði þetta er samhljóða 20. gr. gildandi laga nr. 47/1971. Þar er kveðið á um að ekki megi setja byggingar, girðingar né önnur mannvirki á sjávarströnd né á vatnsbakka eða árbakka þannig að hindri frjálsa umferð fótgangandi manna. Þó er tekið fram að ákvæði þetta eigi m.a. ekki við um mannvirki sem reist hafa verið fyrir samþykkt laganna, þ.e. 1971. Eðlilegt er að fella þessi orð niður því að ella væri verið að heimila mannvirki sem reist hefðu verið ólöglega allt til þess tíma sem frv. fær samþykki. Hér er fyrst og fremst um lagatæknilegt atriði að ræða sem umhvn. hefur sést yfir í meðferð málsins.