Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Mér fannst ekki við hæfi fyrr í dag af hálfu hæstv. forseta að stilla hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni upp við vegg með því að gera hann nánast ábyrgan fyrir því að þinginu yrði ekki lokið fyrr í dag. Með þessum hætti var verið að reyna að hafa áhrif á málflutning hv. þm. og í mínum huga er þetta það alvarlegt að ég sé ástæðu til að gera við þetta athugasemd. Þetta var að sjálfsögðu hið mesta kjarnfóður fyrir fjölmiðla sem hafa meiri áhuga á formi en innihaldi, tímalengd umræðu fremur en málefnalegu innihaldi.