Kosning varaforseta skv. 3. mgr. 3. gr. þingskapa, sbr. 5. mgr. 68. gr.

Þriðjudaginn 03. október 1995, kl. 13:34:33 (9)

1995-10-03 13:34:33# 120. lþ. 1.1 fundur 4#B kosning varaforseta skv. 3. mgr. 3. gr. þingskapa, sbr. 5. mgr. 68. gr.#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Samkvæmt 3. mgr. 3. gr. þingskapa skal nú fara fram kosning sex varaforseta. Samkomulag er milli þingflokka um að kjósa að þessu sinni einungis fjóra varaforseta. Ef enginn hreyfir andmælum lítur forseti svo á að samþykkt séu afbrigði frá þingsköpum um að kosning fimmta og sjötta varaforseta fari ekki fram að svo stöddu. Forseti lítur svo á að það sé samþykkt.