Fjárlög 1996

Föstudaginn 06. október 1995, kl. 15:58:15 (97)

1995-10-06 15:58:15# 120. lþ. 4.2 fundur 1. mál: #A fjárlög 1996# frv., GE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka]

Gísli S. Einarsson (andsvar):

Herra forseti. Það skiptir mig engu hvort verið er að taka undir gagnrýni eða ekki ef menn eru mér á annað borð sammála. Hv. þm. Sturla Böðvarsson var mér sammála í ræðu sinni. Þar sem ég hafði verið að ræða þessi mál á undan honum tók ég því sem svo að hann væri að taka undir gagnrýni mína.