Réttur til launa í veikindaforföllum

Þriðjudaginn 10. október 1995, kl. 14:31:08 (152)

1995-10-10 14:31:08# 120. lþ. 6.4 fundur 10. mál: #A réttur til launa í veikindaforföllum# frv., Flm. HG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka]

Flm. (Hjörleifur Guttormsson) (andsvar):

Virðulegur forseti. Um eitt getum við hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson áreiðanlega verið sammála og það er það sem hann sagði hér. Það eru takmörkin sem þurfa að vera skýr. Það er okkar að draga þessi mörk hér á Alþingi Íslendinga þegar sú löggjöf sem sett hefur verið er það óljós að það er ekki farið eftir henni á þann hátt sem til stóð af löggjafanum þegar lögin voru sett.