Réttarstaða barna með langvinna sjúkdóma

Miðvikudaginn 11. október 1995, kl. 14:07:30 (193)

1995-10-11 14:07:30# 120. lþ. 8.3 fundur 38. mál: #A réttarstaða barna með langvinna sjúkdóma# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., heilbrrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Það er verið að undirbúa lagasetningu um langsjúk börn. Verði breytt lögum varðandi langveik börn þá verður að sjálfsögðu farið að lögum og það kann að kosta meiri peninga en stendur í fjárlögum. En ég fullyrði að það verður góð samvinna milli mín og félmrh. um þessi málefni.